
Það var fyrir nokkrum árum að nokkrir félagar sem voru þá til í að fá sér í glas annað slagið eða bara að fá sér "einn" bjór tóku eitt sinn tal saman og fóru að ræða sín á milli um drykkjumál og annað. Barst það í umræðuna hvað það væri óþolandi þegar kærustur eða aðrar tíkur væru að skipta sér af því þó að menn fengju sér bjór eða dyttu í það nokkrar helgar í röð. Var þetta einum vöskum dreng sérlegt áhyggjuefni og var því brugðið á það ráð að stofna heldramanna félag þessum greyið dreng til hjálpar svo hann gæti drukkið samviskubitlaust með sínum félögum og sagt þá við sína hjásvæfu "En allir aðrir fá að fara." Var þessu félagi gefið mjög svo frumlegt nafn eða Brennzi. Innan íþróttahreyfingarinnar er það skráð sem UMFB eða Ungmennafélagið Brennzi. Félagið var stofnað 8. mars 1997.
Félagar í dag eru 13 talsins.