Fréttir

6. desember 2011 ..:: 1 Athugasemdir ::..
Gleðileg jól og undirbúningur sumargleðinnar 2012

Agalegt hvað maður hefur verið lélegur að skrifra inn á þessa jafn flottu síðu. Finnst vera komin tími á að við virkjum síðuna aðeins.

Ég var að pæla hvort menn væru farnir að pæla eitthvað í sumargleðinni 2012. Mér finnst að við þurfum að fara finna tima og staðsetningu, svo menn geti planað þetta með góðum fyrirvara. Ég væri alveg til að gera þetta í udlandet. Ef einhver kemur með eitthvað gott plan. Ef þið mynduð skoða Árósir þá myndi ég mæla með síðust helgi í juni. Það er musikfestival hérna á þessu tíma fullt af geggjuðum böndum. Held það hafi verið um 50.000 manns í sumar. En held það gæti verið gaman að reyna að kíkja á fótboltaleik eða á einhverja tónleika. Þá mætti líka kíkja til London eða Amsterdam. Svo er nátturlega hægt að vera með golf í þessu. Vandamálið er bara að það eru ekki allir sem spila golf.En það væri gaman ef menn myndu pæla aðeins í þessu. Hvernig stemmarinn er fyrir þetta. Ef þi mynduð vilja halda þetta á íslandinu þá myndi ég bara gera mér ferð heim. Ég held ekki að fjölskyldan komi heim í sumar. Ég var búinn að lofa Pernille sólarlandaferð 2012. Þar sem við erum búinn að koma heim síðust 7 árin sem við erum búin að vera saman.

En ég er að koma heim um jólin eða 22 desember. Stoppa í Rvk í klukkutíma svo flyg ég á króki people. Það væri nú gaman að sjá ykkur kútana eitthvað.

Annars held ég að það verði erfitt þar sem:

Ak inn verður ósofin og í endalausum bleygjuskiptum.

Skassinn verður sem fyrr í litla kofanum fyrir austan að skjóta rebba.

Hassi verður ábyggilega vinnandi öll jólin svo hann hafi nú efni á öllu þessu rugli sem hann endalaust er að kaupa sér.

Gussi verður eflaust að vinna aukalega yfir jólin þar sem hann er ennþá að borga af trúlofunarhringnum.

JB hefur ábyggilega tekið af sér að reisa bústaði yfir jólin.

Raz kemst ábyggilega ekkert, þar sem hann er ennþá að selja klósettpapir fyrir mömmu klúbbinn og búinn að taka af sér formanninn.

Balli býr á rugl stað þannig maður getur gleymt því.

Það kannski að Ómsi og Brennzi mæti á krókinn who knows. Annars geri ég nú ráð fyrir því að þeir frændur verði í ruglinu í Oslo.

En ég heyri alla vegana í ykkur fyrir og um jólin.

Annars ha en rigtig god jul og eins og þeir segja með hreim.

Kveðja Óli Barðdal

Meira...
8. mars 2011 ..:: 0 Athugasemdir ::..
Skál
Sælir félagar og til hamingju daginn Ég ætla rétt að vona að menn séu að staupa sig meðvitundarlausa í kvöld og hiti vel upp fyrir fermingarveisluna sem haldin verður á einhverjum drottins degi er líður nær vori. Einnig vil ég minna menn á Sumargleðina 2011 þann 15-17 júlí en þá verður öllu til tjaldað og skilin eftir sviðin jörð. Síðar AK  
Meira...
11. september 2010 ..:: 4 Athugasemdir ::..
Til hamingju með sigurinn

Er ekki kominn tími á það að óska Stefáni #1 tili hamingju með þrennuna í sumar.

Meira...
3. ágúst 2010 ..:: 1 Athugasemdir ::..
Það hlaut að vera !

Loksins er skýringin kominn

Meira...
 
 
 
 
Eldri fréttir
Fréttasafn