Current Articles

Saturday, August 20, 2005 ..:: Skoðað 359 sinnum ::..
MenningarBrennzi

Það er nú ekki við hæfi að mesti drykkjusvoli og Brennzafyrirmynd flýi land í heiðardalinn þegar mesta fylleríishelgi, síðan Þjóðhátíð í Eyjum var lögð í rúst af aðeins 2 Brennzum, rennur upp.

Þetta er tækifæri sem Brennzar eiga að nýta, til þess eins að upphefja þá ómenningu sem þeir eru þekktir fyrir. Og til að minna rauðhausinn sem ekki einu sinni virðist kunna að drekka lengur, á hvað um er rætt, þá eru það ríðingar og áfengisþamb í óhófi, ekki endilega í þessari röð. Kann ég reyndar YfirBrennzanum þakkir fyrir að taka Messadrenginn #4 í þjálfun síðustu ár og reyna eftir fremsta megni að ala upp í honum ómennsku, en að taka Training Day á svona helgi er skammarlegur blettur á mjög svo blautri ferilsskrá starfsmanns Áfengis og Tóbaksverslunar Ríkisins. Vert er þó að minnast á starf Assistant Coach #2 í þessari þjálfun á #4, en hann er búinn að leggja sitt af mörkum í útrýmingu áfengis í þjóðfélaginu og er það vel. En þvílíkur aumingjaskapur að beila á Þjóðhátíðinni verður honum reyndar til frádráttar og gerir það að verkum að hann kemur til með að skulda ófá skotin af hreinum Brennza til að hvítþvo samvisku sína...

Held að ég eyði svo ekki einu sinni orðum í Trukkabílstjórann sem virðist gjörsamlega búinn að láta þurrka sig upp þarna í rokrassgatinu Drulluvík e-staðar suður í helvíti... Hann hvorki sést né lætur í sér heyra á þessum samskiptamiðli fyllibytta og er það hart. Mun hann fá að þamba Brennzann á næstu samkomu trúleysingjanna og verður séð til þess að hann drepist f miðnætti sem refsing f litla drykkju en of miklar ríðingar sem er þveröfug forgangsröð hjá drykkubolta sem svarið hefur hollustu við Ungmennafélagið Brennza.

Brennzanum Allt, hann lengi drekkist!

#6

Athugasemdir

Name (required)

Email (required)

Website

Enter the code shown above:

 
 
 
 
Eldri fréttir
Fréttasafn