|
Halldór Halldórsson | | Góður Óli :) Já þetta er agalegt hversu lélegir við erum í að nota þessa ágætu síðu. Það verður mitt áramótaheit að finna andann og reyna að virkja skáldið og drullusokkinn í mér og skrifa eitthvað hér á síðuna.
HxH |
|
|
|
Arnar Kárason | | Sælir félagar
Sé að Haddi er ekki enn búinn að fá andann yfir sig og drulla yfir mann og annan. Annars tók ég Óla á orðinu og er búinn að vera að pæla alveg rosalega í sumargleðinni frá miðjum desember. Það hefur hins vegar ekki skilað neinu.
Við þurfum að fara að hóa okkur saman og plana einhverja helvítis vitleysu. Það er misjöfn staðan á mönnum, ýmist með spánýja krakkaskratta á arminum eða þeir handan við hornið. Ég efast því um að allir hafa tök á að bregða sér út fyrir landsteinana um háskaðræðistímann. Ég er samt fylgjandi því að skipuleggja ferð til einhvers fjörugs áfangastaðar þar sem tekið verður í golfkylfu, bjór og eitthvað fleira - þ.e. eina rauðvín fyrir Óla. Það eru nú eftir allt saman 3 Brennzar brottfluttir og því ekki úr vegi að hittast á meginlandinu.
Líf og fjör,
AK |
|
|
|
Guðjón Gunnarsson | | Já þetta er alveg magnaður fjandi. Ragnar Már er búinn að fjarlægja snjóflygsurnar sem hafa þvælst fyrir manni á þessari síðu í ca 18 mánuði. Það þýðir vonandi að það muni lifna aftur yfir þessari síðu. Ég fékk alltaf nett flogaveikiskast þegar ég kom hingað inn og hrökklaðist út aftur jafn harðan.
Það er gleðiefni að Dóri ætli sér að fara að virkja skáldið og drullusokkinn í sér. Þó er einn galli á gjöf Njarðar þar sem að Haddi hefur skáldagáfu á við dauða rollu og drullusokkur er hann alls enginn.
En að máli málanna. Sumargleðinni 2012. Arnar bendir réttilega á að það er fullmikið um spáný smábörn þessa dagana. Ýmist nýfædd eða á leiðinni einhvers staðar. Meira að segja fréttist af einum spánýjum og sólbrenndum Brennza í S-Ameríku.Þó eru það eingöngu sögusagnir.
Gæti seinni parturinn í maí gæti komið til greina? Eru erlendir Brennzar eitthvað á leiðinni til landsins í ár? Ef að eitthvað á að gerast þá er ekki seinna vænna en að fara að negla dagsetningu.
Annars bið ég kærlega að heilsa ykkur og verið þið margblessaðir.
GBG |
|
|
Nafn (skilyrt) Netfang (skilyrt)
Vefsíða
|