Current Articles

Saturday, June 26, 2010 ..:: Skoðað 125 sinnum ::..
SUMARGLEÐI UMFB 2010

Sælir drengir. Hvernig gengur skipulagning sumargleðinnar. Er ekki dagsetningin komin á hreint? Verður Óli eini útlendingurinn sem mætir?

Mætir JB eða verður landsmót trukkabílstjóra sömu helgi? Verður Skarpi orðinn daddy-Cool?

Mun ríkjandi tvöfaldur Brennzameistari verja báða titlana?

Eru einhverjir rauðir dagar sem Haddi verður að vinna á þessum tíma?

Mætir Arnar með krakkaskrílinn með sér?

Mun Ragnar  fórna mömmuklúbbshittingi fyrir þessa helgi?

Munu EInar og Ómar verða í beinu gervihnattasmbandi eða ætla þeir að mæta sem óvæntir leynigestir?

Ætlar Stefán að verða bláedrú allan tímann en halda sér samt?

Það er ekki seinna vænna en fara að skella fram drögum  að dagskrá svo menn geti farið að hefja andlegan undirbúning fyrir þessa stærstu helgi ársins.

Lifi Brennzinn.

Kveðja frá ríkjandi Brennzameistara (í öðru veldi)

 

Athugasemdir
Arnar Kárason
Sælinú
Það er óhætt að segja að skipulagning gangi með ágætum og er næsta víst að enginn brennzi verði svikinn af þessari veislu. Dagsetning var löngu ákveðin og vil ég biðja menn um að vera betur með á nótunum en raun ber vitni. En til að taka af allan vafa þá erum við að tala um 17-18 júlí. Þetta er sú helgi sem flestir komast og þar við situr. Nú verður Trausti að standa sig í veðurfréttunum.

Að venju er allt á huldu með dagskrána en gerið ráð fyrir að taka þessa tvo daga frá að fullu.

Nánari upplýsingar væntanlegar innan skamms. Krakkarnir verða heima.

Arnar
Oli Barddal
Blesssaðir Drenge

Þetta myndband er algjör snilld hehehehe, já sammála síðasta ræðumanni, vona að það verði goð mæting. Farinn að telja niður dagana.

Get lofað því að í þetta skipti verða brotnar nokkrar rúður og kannksi hurðir ef maður kemast á flugið.

Hilsen Oli
omar sigmarsson
sælir félagar......

þetter er magnað myndband... ja vona að allir sem geta mæti..

og auðvitað kem ég,,,,,spurning hvort raggi geti ekki lagt ut fyrir fluginu svo borga ég honum bara i norskumheheheh

farinn að hlakka mikið til að hitta ykkur kútar....

mvh ommi simm.

Name (required)

Email (required)

Website

Enter the code shown above:

 
 
 
 
Eldri fréttir
Fréttasafn