Jæja Þá er takmarkinu náð og þetta afar upplífgandi röfl hans Raz komið af forsíðunni. Menn koma væntanlega misvel frá helginni. Hitti Assa Kass á laugardaginn rétt fyrir kvöldmat, og var drengurinn vægast sagt illa haldinn. Bakkus kóngur kann það lag ef köld og myrk er lundin að breyta nótt í bjartan dag og brúa dýpstu sundin Augun gerast vot og veik vitinu sumir farga Svona eftir sælan leik svíkur Bakkus marga Góðar stundir Brennz |