Fréttir

4. desember 2009 ..:: Skoðað 433 sinnum ::..
Daxins Vísur

Menn kunna misvel að meðhöndla áfenga drykki.  Brennzarnir eru allnokkuð sjóaðir í meðhöndlun áfengra drykkja og merkilegt nokk þá hefur ekki einasti maður farið í meðferð.  Enda er það fyrir aumingja eins og maðurinn sagði, og fyrr hætti ég að drekka en að fara í meðferð og allt það.  Vísur dagxins hafa með meðhöndlun áfengra drykkja að gera, en þó frá sitthvoru sjónarhorninu.

Fyrst er það fúli kallinn

           Ef þú villt að ævi þín

         öll í hunda fari

          á hverjum degi drekktu vín

          dýrum vitlausari.

Seinni er nú öllu hressari

           Góður sopi geðjast mér

          glaður klappa ég á stútinn.

          Meðan dropi eftir er

          ei tappa læt í kútinn.

 

Góðar stundir

Brennz

Athugasemdir
Carrie
I thought finding this would be so arduous but it's a berzee!

Nafn (skilyrt)

Netfang (skilyrt)

Vefsíða

Enter the code shown above in the box below

 
 
 
 
Eldri fréttir
Fréttasafn