Það muna flestir Brennzar eftir hinum mikla fák Demolition Derby. Þessi vísa á vel við þann mikla grip.
Þeir sem sitja honum hjá hanga á völtum stólum. Beygjur fer hann allar á aðeins tveimur hjólum. Þynnka er fylgifiskur drykkju og skemmtunnar og er henni misvel tekið þegar hún bankar uppá daginn eftir. Við Brennzarnir höfum nokkuð oft verið fullir saman en ekki fengið að njóta þynkustunda saman í jafnmiklu mæli nú og fyrr á dögum þegar menn voru lausir og liðugir og bjuggu saman. Því eru þessar stundir afar dýrmætar og sérstaklega ofarlega í huga mér er bíltúr frá Akureyri og suður um heiðar í sumar þar sem menn voru misjafnlega hressir og aðrir hreint og beint ónýtir (lesist Guðjón). það sem var sérstakt við þessa ferð er að við snillingarnir fundum þann mann sem leit hvað verst út á einhverri ruslasjoppunni á höfuðstað norðurlands og buðum honum far, var þetta gert með það að leiðarljósi að #2 hefði þar þjáningar-bróðir sem var verr farinn enn hann sjálfur. Ekki var það farsælt hjónaband því að gesturinn var ekki að hjálpa #2 á neinn einasta hátt, heldur þvert á móti jók hann á ógleði allra viðstaddra með því að skila grillveisunni frá því kvöldið áður ásamt meiginþorra innyfla. Úr varð hin óþægilegasta skemmtun og gríðarlegt álag var á hemlunarbúnaði húsbílsins, því að sífellt þurfti að vera að stoppa og gekk ferðin því frekar hægt. Enn ekki má gleyma dásemdum þynnkunar, og um að gera að reyna að njóta hennar í botn. Eftir Brennza drykkjutúr drattast fram úr latur. Alltaf fullur alltaf súr eins og skemmdur matur. Góðar stundir Brennz |