Current Articles

Monday, November 30, 2009 ..:: Skoðað 127 sinnum ::..
Tekið til í geymslunni !!

Sælir Piltar

Þar sem ég tók mig til um helgina og fór að taka til í geymslunni niðri í kjallara, sem er nú svo sem ekki frásögum færandi  ...eða jú það er reyndar frásögum færandi því að það hefur aldrei verið gert áður, en er enn að síður afar óspennandi að vera að segja frá því, nema hvað að þar fann ég vísur nokkrar handkrotaðar á blað, ásamt öðru glæsilegu efni eins og t.d leikskrár frá leikjum UMFT, þegar menn kunnu að búa til leikskrár. Ég ætla því að henda inn vísum dagsins meðan ég hef efni og þrek til og jafnvel einhverjum gullkornum úr þessum leikskrám.

Þess ber að geta að ekki eru allar þessar vísur einhver snilld og flestar eru þær eflaust stolnar og aflagaðar eftir þörfum.

Einnig geri ég þetta af því að ég er hundleiður á þessum jákvæðu skilaboðum sem prýða forsíðuna.

Þá er ekki úr vegi að byrja á mannlýsingu sem gæti átt nokkuð vel við Masterinn er kenndur er við Raz.

        Kútvaxinn og kraftasmár

        kreikar oft að húsum.

        Ber á höfði biksvart hár

        broddafullt af lúsum.

Næst er heilræði sem allir ættu að geta haft gagn af, ekki síst í þessari kuldatíð

        Ef þú vaknar volandi

        og vömbin eitthvað skrýtin

        Fjandi er þá freistandi

        að fá sér einn lítinn.

 

Góðar Stundir

Brennz

 

 

 

Athugasemdir
Only registered users may post comments.
 
 
 
 
Eldri fréttir
Fréttasafn